Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Það er spennandi að byrja í skóla. Nýr og framandi heimur opnast. Um leið verður barnið þitt þátttakandi í umferðinni. Börn fara með ýmsum hætti í skólann. Þau ganga, hjóla, eru keyrð í einkabíl, með strætó eða skólabíl. Barn sem er að byrja í skóla hefur ekki þroska eða reynslu til að átta sig á því sem skiptir máli að gefa gaum í umferðinni. Hægt er að gera margt til að tryggja öryggi barnsins sem er á leið í skólann. Til dæmis er mikilvægt að brýna fyrir börnum að þó að þau sjái bíl þá sé ekki öruggt að bílstjórinn sjái þau. Það er mjög mikilvægt að á fyrstu árum ævinnar sé barnið frætt um rétta hegðun í umferðinni. Hægt er að nota sumarið áður skólaganga barnsins hefst til að finna út öruggustu leiðina í skólann. Gott er að ganga þá leið með barninu nokkrum sinnum. Stysta leiðin er ekki alltaf sú öruggasta, miklu fremur leiðin þar sem sjaldnast þarf að ganga yfir götur. Þótt aðstæður séu þannig að barnið geti gengið eitt í skólann er samt nauðsynlegt að fylgja því fyrstu dagana og fara vel yfir allar umferðarreglur. Best er að kenna börnum einfaldar og fáar reglur. Mikilvægt er að fullorðnir fari sjálfir eftir þessum reglum og séu þannig börnum góðar fyrirmyndir.

Kennum barninu:
Að þegar farið er yfir götu á að stoppa, líta vel til beggja hliða og hlusta og ganga síðan yfir ef það er óhætt. Ekki hlaupa.
Að aldrei má ganga út á götu á milli kyrrstæðra bíla.
Að nota alltaf gangbrautir þar sem þær eru.
Að þegar það ætlar að ganga yfir á gangbraut á gatnamótum þar það að gæta sérstaklega að bílum sem beygja inn götuna og þurfa að keyra yfir gangbrautina. Mikilvægt er að minna sérstaklega á að það sé ekki öruggt að leggja af stað yfir fyrr en bíllinn hefur stoppað, jafnvel þótt græna ljósið logi.
Að nota handstýrð umferðarljós rétt; hvenær á að bíða og hvað rauði og græni liturinn táknar. Leggja þarf áherslu á að ef barnið er komið út á gangbrautina þegar græna ljósið fer að blikka og það rauða birtist á að halda áfram yfir götuna, ekki fara til baka.
Að ef engin gangstétt er á að ganga á móti umferðinni, eins fjarri henni og unnt er. Ef fleiri eru saman á að ganga í einfaldri röð.
Að allir eiga að nota endurskinsmerki eða vera í yfirhöfnum með endurskini. Úlpur, kuldagallar, skór, stígvél og skólatöskur eiga að vera með endurskini.

Keyrð í skólann
Víða eru aðstæður þannig að aka verður barninu í skólann og skapar það oft mikla umferð í kringum skólana. Nauðsynlegt er að gæta vel að því hvar barnið fer út úr bílnum við skólann og stoppa ekki þar sem hætta getur skapast fyrir barnið eða önnur börn sem eru á ferð. Alltaf skal hleypa barninu út gangstéttarmegin, aldrei út á akbraut. Við marga skóla eru sérútbúin útskot þar sem hægt er að stoppa í stutta stund og hleypa barninu út úr bílnum. Hafa skal í huga að barn sem er að hefja skólagöngu er ekki orðið nógu stórt til að nota eingöngu bílbelti. Nauðsynlegt er að nota bílpúða eða bílpúða með baki þar til barnið hefur náð 150 sm. á hæð. Gott er að lesa kaflann um öryggi barna í bíl hér á heimasíðunni.

Í skólabíl
Ef barnið ferðast með skólabíl eða strætó í skólann þarf að brýna eftirfarandi fyrir því:
Að ganga inn og út úr bílnum í einfaldri röð.
Að bíða þar til bíllinn er farinn áður en gengið er yfir götuna.
Að nota alltaf bílbelti ef þau eru í skólabílnum.


Hjólandi í skóla
Börn sem eru að hefja skólagöngu eiga ekki að ferðast ein um á reiðhjóli. Samkvæmt umferðarlögum mega börn yngri en sjö ára ekki hjóla ein á akbraut. Margir skólar eru sérstakar reglur um notkun reiðhjóla á skólalóð.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++