Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Öryggisbúnaður fyrir börn í bílum

Á hverju ári slasast yfir 20 börn, 6 ára og yngri, sem eru farþegar í bílum. Með góðum öryggisbúnaði hefði verið hægt að koma í veg fyrir mörg þessara slysa og draga verulega úr áverkum í öðrum.

Þegar barnabílstóll er festur í bíl er nauðsynlegt að það sé gert á réttan hátt. Þó barn sé í barnabílstól getur það slasast alvarlega eða látið lífið sé stóllinn ekki rétt festur. Mikið hefur áunnist varðandi öryggi barna í bílum og hefur slysum á þeim fækkað verulega síðustu árin. Góður öryggisbúnaður sem er rétt notaður skiptir þar höfuðmáli.

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um könnunina Öryggi leikskólabarna í bílum 2011.

Öryggi barna er á okkar ábyrgð
Í 71. gr. umferðarlaga segir m.a.:

Ökumaður skal sjá um að í stað öryggisbeltis, eða ásamt því, noti barn viðurkenndan
barnabílstól, beltispúða eða annan sérstakan öryggis- og verndarbúnað ætlaðan börnum lægri en 150 sm á hæð. Rannsóknir hafa sýnt að börn eru öruggari í bakvísandi barnabílstólum en þeim stólum sem vísa fram. Mælt er með notkun bakvísandi stóla fyrir börn upp að 4 ára aldri. Hér má sjá myndband sem sýnir þetta nánar.

Barn sem er lægra en 150 sm á hæð má ekki vera farþegi í framsæti bifreiðar sem búin er
uppblásanlegum öryggispúða fyrir framan sætið.

Barn yngra en þriggja ára má ekki vera farþegi í fólks-, sendi- eða vörubifreið nema hún sé
með viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði ætluðum börnum.
Ökumaður skal sjá um að farþegi yngri en 15 ára noti öryggis- og verndarbúnað.

Í könnunum sem gerðar hafa verið við leikskóla víða um land síðan 1996 kemur í ljós að notkun öryggisbúnaðar hefur aukist ár frá ári. Það er þó áhyggjuefni að töluvert er um að börn noti öryggisbúnað sem hvorki hæfir þyngd þeirra né aldri. Í nýlegri könnun kom í ljós að um 14% barna notuðu engan búnað eða einungis bílbelti sem er ófullnægjandi búnaður.

Öryggisbelti er hannað fyrir fullorðið fólk og því þarf, með beltinu, að nota viðeigandi búnað, annaðhvort barnabílstól eða bílpúða með eða án baks, hafi barn ekki náð 150 sm hæð.

Öryggisbúnaði er skipt í fjóra flokka eftir þyngd barnsins
Flokkur 0: Þyngd að 13 kg, börn frá fæðingu til u.þ.b. 12-15 mánaða.
Flokkur 1: Þyngd 9 til 18 kg, börn frá u.þ.b. 9 mánaða til 3 ára.
Flokkur 2: Þyngd 15 til 25 kg, börn frá u.þ.b. 3-6 ára.
Flokkur 3: Þyngd 22 til 36 kg, börn frá u.þ.b. 4-10 ára.

Flokkur 0
Stólar í þessum flokki eru ætlaðir yngstu börnunum og henta þar til barnið hefur náð 10 kg þyngd. Stólarnir snúa baki í akstursstefnu, annaðhvort í fram-eða aftursæti. Þessir stólar eru alltaf festir með þriggja festu öryggisbeltum nema annað sé tekið fram. Sé stóllinn í framsæti á sætið að vera eins langt frá mælaborði og hægt er. Það sama á við um fjarlægð að baki framsætis sé stóllinn hafður í aftursæti. Aldrei má hafa barnabílstól í framsæti ef uppblásanlegur öryggispúði er fyrir framan sætið.

Mælt er með því að búið sé að kaupa fyrsta bílstól barnsins áður en barnið fæðist. Oftar en ekki dvelja móðir og barn aðeins fáeinar klukkustundir á fæðingardeildinni og þá getur verið óþægilegt að hafa ekki rétta stólinn til að fara með barnið heim í.

Flokkur 0+
Stólar í þessum flokki ætlaðir börnum að 13 kg eða þar til þau eru u.þ.b. 12-18 mánaða. Eins og með stóla í flokki 0 þá eru þessir stólar festir með þriggja festu öryggisbeltum og snúa baki í akstursstefnu annað hvort í fram- eða aftursæti.

Flokkur 1
Þessir stólar eru ætlaðir börnum sem eru 9-18 kg eða u.þ.b. 9 mánaða til 3 ára. Sumir stólar í þessum flokki eru gerðir til að geta snúið annað hvort fram eða aftur miðað við akstursstefnu. Barn í bakvísandi barnabílstól er mun líklegra til að sleppa óskaddað verði slys heldur en barn sem situr í barnabílstól sem snýr fram.

Flokkur 2
Þetta er viðurkenndur öryggisbúnaður fyrir börn 15-25 kg eða u.þ.b. 3- 6 ára. Til eru stólar í þessum flokki fyrir börn allt að 36 kg, með eða án belta. Ef valinn er stóll þar sem öryggisbelti bílsins (þriggja punkta) er notað, þarf beltið að falla vel að líkama barnsins. Öryggisbeltið á að liggja yfir öxl og brjóst og neðra beltið yfir læri. Ef barnið er smávaxið er betra að velja stól með innbyggðum beltum því annars situr öryggisbelti bílsins ekki rétt á barninu.

Flokkur 3
Öryggisbúnaður fyrir börn 22-36 kg eða u.þ.b. 4-10 ára. Þetta eru bílpúðar, með eða án baks.  Bílpúðar með baki veita betri vörn en bílpúðar án baks því að á bakinu eru lykkjur eða hök til þess að þræða öryggisbeltið í þannig að það falli rétt að líkama barnsins en bakið veitir einnig stuðning við höfuðið. Bílpúðar með eða án baks eru hafðir í aftursæti og þeir eru festir með þriggja festu öryggisbelti. Mikilvægt er að gæta þess að öryggisbeltið liggi yfir læri og á öxl barnsins. Börn ættu ekki að nota eingöngu bílbelti fyrr en þau hafa náð 150 sm hæð eða u.þ.b. 10- 12 ára aldri. Ef öryggisbeltið liggur á maga og hálsi barnsins er það of lágvaxið fyrir bílpúða og ætti frekar að vera í barnabílstól.

Athugið að einnig eru til stólar sem hægt er að nota frá fæðingu til u.þ.b. 4 ára aldurs.

Viðurkenndur öryggisbúnaður
Öryggis- og verndarbúnaður fyrir börn í bílum skal vera viðurkenndur.
Einungis er leyfilegt að nota hér á landi búnað sem uppfyllir öryggisstaðla, annað hvort Evrópustaðalinn ECE eða sambærilegt.  Nánar er hægt að lesa um það í reglugerð 348, viðauka III.

E-viðurkenningin felur í sér að búnaðurinn uppfyllir kröfur samkvæmt ECE-reglugerð nr. 44.03 og 44.04. Bandaríska og kanadíska merkingin þýðir að búnaðurinn er í samræmi við þarlenda staðla.

Endingartími barnabílstóla
Endingartími barnabílstóla er 6-8 ár.

Hvað er ISOFIX?
Í mörgum nýrri bílum eru ISOFIX-festingar. Festingarnar eru hluti af grind bílsins og eru settar þar þegar bíllinn er smíðaður. Í bílum sem hafa slíkar festingar eru ekki notuð öryggisbelti til að festa stólinn heldur eiga festingarnar á stólnum sjálfum að passa við ISOFIX-festingarnar. Lesið leiðbeiningar vel.

Fræðslumyndband - Öryggi barna í bílum

You must install the Flash Player to watch this movie online.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++