Árangursrík umferðarfræðsla að mati nemenda
Uppbygging verkefnisins byggir á svonefndu 4MAT-kennslukerfi sem hannað var af Bearnice McCarty árið 1980. Kennslukerfið byggði hún annars vegar á rannsóknum fræðimanna á mismunandi námsstíl og hins vegar á rannsóknum á starfsemi heilahvelanna sem sýna að ákveðin svið tengjast annað hvort vinstra eða hægra heilahveli. Sjá nánar hér.
I. Hvers vegna umferðarfræðsla?
Allir saman
Hugarflæði frá nemendum. Hver nemandi fær renninga og túss til að skrifa sínar hugmyndir um tilganginn með umferðarfræðslu. Ein hugmynd er skráð á hvern renning. Renningar eru límdir á vegg og hugmyndir ræddar.
II. Hvað eigum við að læra um umferðina samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla? Hvaða fræðslu bjóða utanaðkomandi aðilar upp á?
Allir saman
- Farið yfir helstu markmið Aðalnámskrá grunnskóla í umferðarfræðslu. Rætt út frá staðreyndum, gildum og lífsstíl.
- Ýmis umferðartengd verkefni sem utanaðkomandi aðilar bjóða upp á eru skoðuð og rædd, t.d. ÞOR-verkefnið, Lögreglumappan, vefefni, efni á geisladiskum og ökuréttindanám.
III. Hvernig virkar sú fræðsla sem er við lýði í dag?
Hópvinna
Nemendur fjalla um þá umferðarfræðslu sem þeir hafa reynslu af og leggja mat á þann árangur sem fræðslan hefur í för með sér. Hvernig samræmist þessi fræðsla hugmyndum nemenda um árangursríka umferðarfræðslu? Hvað er gott og hvers vegna? Hvað er slæmt og hvers vegna?
IV. Svona viljum við hafa það!
Hugmyndir nemenda tengdar við námskrá.
Hópvinna:
- Nemendur leggja fram eigin hugmyndir um hvernig þeir vilja hafa umferðarfræðslu.
- Nemendur kynna hugmyndir sínar og nota þá aðferð sem þeim hentar best.
