Venjuleg leturstærð Stækka texta Ljós texti á dökkum bakgrunni Veftré Prenta síðu
Leita

Áherslur í umferðarfræðslu heimilanna

Í upphafi hvers skólaárs er mikilvægt að fara yfir helstu umferðarreglur sem nemendur þurfa að þekkja og geta nýtt sér til að tryggja öryggi sitt í umferðinni. Eftirfarandi gátlisti er til að auðvelda foreldrum og forráðamönnum þessa vinnu.

Gátlisti

  • Leiðin milli heimilis og skóla (og frá heimili vinar að skóla)
  • Leiðir milli vina
  • Gangstéttir
  • Gangbrautir
  • Gangbrautaljós
  • Umferðarljós
  • Öryggi barna í bíl
  • Skólabíll/strætó
  • Hjól, hjólareiðahjálmar og ljós á hjólin
  • Útivistartími
  • Endurskinsmerki
  • Hjól nemenda í 1. - 5. bekk í geymslu 1. október
  • Hjól, hjólareiðahjálmar og ljós á hjólin hjá nemendum 6. - 10. bekkjar
  • Leiksvæði, vetrarleikir

Á vorin þarf að leggja sérstaka áherslu á:

  • Leiksvæði, vor- og sumarleiki
  • Hjól - reiðhjól, hlaupahjól, línuskauta
  • Hjólreiðahjálma og aðrar öryggishlífar

Kennum börnum okkar

  • Að virða umferðarreglur
  • Að virða reglur um útivistartíma
  • Að sýna tillitssemi í umferðinni
  • Að sýna ábyrga hegðun í umferðinni

Akstur umhverfis skólann

Vinsamlegast akið varlega umhverfis skólann.
Hleypið börnum ykkar út úr bifreiðum á öruggu svæði.