Venjuleg leturstærð Stækka texta Ljós texti á dökkum bakgrunni Veftré Prenta síðu
Leita

Umferðarfræðsla - hugsanleg tengsl við aðrar námsgreinar

Íslenska

  • Heiti umferðarmerkja.
  • Lestur á fjölbreyttu efni sem tengist umferð.
  • Upplýsingaöflun, úrvinnsla og túlkun.
  • Notkun á margmiðlunarefni.
  • Úrvinnsla úr tölulegum og myndrænum upplýsingum.
  • Framsetning/flutningur á niðurstöðum verkefna, m.a. með aðstoð upplýsingatækni.
  • Ritun.
  • Frásögn. umræða og hlustun
  • Texti í tjónaskýrslum (málvillur o.fl.)

Lífsleikni

  • Leikreglur í mannlegum samskiptum
  • Dómskerfið, lög og reglur.
  • Samskiptafærni
  • Ábyrg hegðun í umferðinni/siðferði í umferðinni.
  • Umferðarreglur.
  • Umferðarmerki.
  • Öryggi í umferðinni.
  • Reiðhjól, hlaupahjól, línuskautar.
  • Almenningsvagnar.
  • Vegvísar, vegaskilti, kort og tímatöflur.
  • Slysavarnir
  • Forvarnir
  • Áróður í auglýsingum.

Samfélagsfræði

  • Áhrif umferðar á samfélagið sem nemendur lifa í, þ.m.t. umferðarumhverfi skólans og leiðin milli heimilis og skóla.
  • Reglur.
  • Umferðarmenning.
  • Þjónustustofnanir sem tengjast umferð og störf fólks á þessum stofnunum.
  • Athuganir á ýmsu sem snertir umferð, úrvinnsla, túkun og framsetning.
  • Samgöngur og farartæki fyrr og nú.

Upplýsinga- og tæknimennt

  • Vinna með umferðarnámsefni sem er að finna á Netinu, sjá yfirlit yfir vefi sem tengjast umferð.
  • Nota skólabókasafnið og Netið við upplýsingaleit.
  • Nota tölvutæknina til að vinna verkefni tengd umferð, t.d. nýta forrit eins og Exel, Power Point og Front Page (...búa til bekkjarvef um umferðarmál) og myndvinnslutæknina.
  • Myndbönd um umferðarmál, s.s. fræðsluefni, auglýsingar og fréttir.
  • Búa til líkan af litlum bæ þar sem unnið er með samgöngur og umferðarreglur (frá hugmynd til afurðar).
  • Búa til umferðarmerki til að nota á reiðhjólabrautum á skólalóð.

Náttúrufræði

  • Áhrif umferðar á umhverfið og náttúruna, s.s. umferðarmannvirki og mengun.
  • Hönnun umferðarmannvirkja.
  • Áhrif árstíðabreytinga á umferðina.
  • Mismunandi orkugjafar, tækninýjungar á því sviði og áhrif þeirra á samfélagið.
  • Orkuþörf ökutækja.
  • Kraftur og hreyfing: http://www.us.is Umferðaröryggi: Hemlunarvegalengd, Hraði/tími

Stærðfræði

  • Söfnun upplýsinga um eitt og annað sem tengist umferð.
  • Skráning á niðurstöðum í súlurit og gröf.
  • Umræða um niðurstöður og rökstuðningur.
  • Að búa til og vinna með kort af umhverfinu.
  • Lögun og stærð umferðarmerkja.
  • Þrautalausnir sem tengjast umferðinni.
  • Útreikningur á tíma, tímaáætlanir og töflulestur.
  • Vinna með hlutföll og mælingar við gerð líkans af bæjar- samfélagi.
  • Mælingar á hemlunarvegalengd o. fl. sem tengist umferð. http://www.us.is Umferðaröryggi: Hemlunarvegalengd, Hraði/tími