Umferðarlagabrot - Hópverkefni
Eru til einhver umferðarlagabrot sem ekki hafa einhvers konar afleiðingar í för með sér? Lesið eftirfarandi sögur og leitið svara á síðunni Svipting og endurveiting ökuréttinda á vef Umferðarstofu http://www.us.is/id/933.
Saga I
Bíl er ekið á 60 km hraða eftir götu í rólegu íbúðarhverfi þar sem hámarkshraði er 30 km á klst. Gatan liggur að aðalbraut þar sem umferð er mikil og er því stöðvunarskylda á gatnamótunum. Þar sem ökumaður bílsins er á mikilli hraðferð brunar hann beint út á aðalbrautina án þess að virða stöðvunarskyldu. Hann svínar fyrir einn bíl en lætur sér fátt um finnast og eykur hraðann uns hann er kominn á 90 km hraða en hámarkshraði á aðalbrautinni er 70 km á klst. Hann veitir hins vegar ekki eftirtekt lögreglubíl sem var fyrir aftan bílinn sem hann svínaði fyrir og ekur áfram uns hann nálgast ljósastýrð gatnamót. Hann sér að það er komið gult ljós en þar sem hann telur sig ekki hafa tíma til að bíða eftir grænu ljósi ákveður hann að gefa allt í botn og taka sénsinn á því að ná yfir gatnamótin áður en rauða ljósið kviknar. Hann sér að það mun ekki ganga en hann fer samt yfir. Eftir skamma stund er hann stöðvaður af lögreglunni sem hafði veitt honum eftirför allan tímann.
Hvað verður gert í málum þessa ökumanns? Rökstyðjið svarið.
Saga II
Kvöld eitt síðla hausts var lögregla við hraðamælingar á ónefndum stað á þjóðvegi 1. Veðrið var slæmt, úrhellisrigning og vindhraði fór yfir 13 metra á sekúndu. Einn af þeim ökumönnum sem lögreglan þurfti að hafa afskipti af ók 40 km yfir leyfilegum hámarkshraða. Ökumaðurinn virti ekki strax tilmæli lögreglunnar um að stöðva bifreiðina og gaf frekar í en hitt. Áður en lögreglan náði að stöðva hann hafði hann ekið fram úr tveimur bifreiðum, þar af annarri á blindhæð og sleppt því að lækka ljósin þegar hann mætti öðrum bifreiðum. Þegar ökumaðurinn stöðvaði loks bifreið sína kom í ljós að hann hefði ekki spennt á sig öryggisbeltin.
Hvað verður gert í málum þessa ökumanns? Rökstyðjið svarið.
Saga III
13 ára unglingur ekur um hverfið sem hann býr á litlu bifhjóli. Hann virðir ekki biðskyldu og ekur eina götuna gegn einstefnu. Auk þess fer hann hluta leiðarinnar eftir gangstéttinni. Hann reiðir jafnaldra sinn og hvorugur þeirra er með hlífðarhjálm.
Hvaða greinar umferðarlaga eru brotnar í þessari ökuferð og hver eru viðurlögin?
Saga IV
(Þessi frásögn er tekin af fréttavefnum www.mbl.is 12.03.2005)
Stöðvaður fyrir ofsaakstur á Selfossi
Allsgáður átján ára ökumaður var stöðvaður vegna ofsaaksturs rétt vestan við Selfoss á þriðja tímanum í nótt. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi mældist maðurinn á 137 km hraða við brúnna vestast á Selfossi þar sem hámarkshraði er 50 km. Hann ók síðan í gegnum hringtorg og út úr bænum en var stöðvaður eftir að hann mældist á 150 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km.
Hvað verður gert í málum þessa ökumanns? Rökstyðjið svarið.
Sögur teknar af Lögregluvefnum www.logreglan.is
I
Maður á þrítugsaldri var nýverið dæmdur í héraðsdómi Vesturlands fyrir að hafa í tvígang á sama sólarhringnum verið handtekinn af lögreglunni á Akranesi grunaður um akstur undir áhrifum ólöglegra fíkniefna. Blóðrannsókn leiddi í ljós að maðurinn hafði neytt amfetamíns.Maðurinn var dæmdur til greiðslu sektar auk málskostnaðar. Hann fékk einn dóm til viðbótar. Hvaða dómur var það og hvað þurfti hann að greiða í sektir og málskostnað?
II
Á tímabilinu janúar til september hefur 251 ökumaður verið kærður af lögreglunni á Sauðárkróki fyrir að aka of hratt. Á sama tíma á síðasta ári voru 189 ökumenn kærðir, fyrir sama brot. Hverju munar á fjölda ökumanna sem kærðir voru fyrra og seinna árið?
Í síðasta mánuði voru 66 ökumenn kærðir af lögreglunni á Sauðárkróki fyrir of hraðan akstur. Það sem af er þessum mánuði hafa 56 ökumenn verið kærðir. Um síðustu helgi voru 38 teknir af þessum 56 og þykir lögreglumönnum hér nóg um.
Einn af þessum ökuþórum var tekinn á 100 km/klst í Varmahlíðarhverfi, þar sem hámarkshraði er 50 km/klst Hvaða dóm fær þessi ökumaður? Rökstyðjið svarið.
Helmingur af ökumönnunum 38 ók 40 km/klst yfir leyfilegum hámarkshraða innanbæjar og 8 af þeim óku einnig á móti rauðu ljósi en hinn helmingurinn ók á 110 km/klst þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Hve há var sektin samanlagt sem þessir ökumenn þurftu að greiða? Hljóta þeir fleiri dóma? Rökstyðjið svarið.
III
Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn fyrir lyfjaakstur síðdegis í gær í en hann var stöðvaður í porti lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu. Þangað hafði hann komið til að hitta kunningja sinn að máli en sá var í haldi lögreglu sem hafði stöðvað hann nokkru áður fyrir að aka undir áhrifum lyfja. Akstur mannsins var umsvifalaust stöðvaður og hann handtekinn þar sem hann var í annarlegu ástandi. Hvað dóma átti maðurinn yfir höfði sér? Rökstyðjið svarið.IV
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu gekk ágætlega fyrir sig í gær og lítið bar á hraðakstri. Þó voru þrír ökumennn staðnir að hraðakstri í götum í Breiðholti þar sem leyfður hámarkshraði er 30 km/klst en bílar þeirra allra mældust á meira en 60 km/klst.Hvaða dóma fá þessir ökumenn? Rökstyðjið svarið.
V
V. Lögreglumenn stöðvuðu för nítján ára pilts á Miklubraut í gærkvöld en sá ók bíl þrátt fyrir að hafa aldrei öðlast ökuréttindi. Að auki voru skráningarnúmer tekin af en bíllinn, sem er nokkuð kominn til ára sinna, var síðast færður til skoðunar árið 2002.Hvaða greinar umferðarlaga eru brotnar í þessari ökuferð og hver eru viðurlögin? Rökstyðjið svarið.
