Vefleiðangur - ökunám
Kynning | Verkefni| Bjargir | Ferli | Mat | Niðurstaða
Kynning
10. bekkingar!
Á lífsleiðinni tökum við mörg stór skref sem krefjast aukinnar ábyrgðar af okkur sem þjóðfélagsþegnum. Eitt af þeim stærstu er að taka bílpróf og fá leyfi til aka bifreið.
Í þessum vefleiðangri fáið þið innsýn inn í aðstæður ykkar fyrir og eftir bílpróf, hvað það kostar að eignast og reka bifreið og þau áhrif sem þessar breytingar hafa á líf ykkar.
Lesið vel yfir allan leiðangurinn áður en þið hefjist handa.
Verkefni
Þessi vefleiðangur er samvinnuverkefni og skiptist í tvo hluta. Í fyrri hlutanum aflið þið upplýsinga og vinnið kynningarefni um allt sem fylgir því að taka bílpróf en í þeim seinni horfið þið fram á við og skoðið líf ykkar að tveimur árum liðnum. Þá er miðað við að þið séuð bifreiðareigendur á öðru ári í framhaldskóla og stundið hlutastarf með náminu. Þið þurfið að gera fjárhagsáætlun og skipuleggja tíma ykkar þar sem þið eruð í fullu námi. Afrakstur vinnu ykkar kynnið þið á foreldrafundi að leiðangri loknum.
Dagbók
Strax við upphaf vefleiðangursins byrjið þið á því að halda dagbók í eina viku þar sem hver og einn skráir hvernig dagurinn líður frá því þið vaknið á morgnana og þar til þið sofnið á kvöldin. Þið eigið einnig að halda skrá yfir alla þá peninga sem þið vinnið ykkur inn þessa viku eða fáið í vasapening og hvernig þið eyðið þeim eða ráðstafið á annan hátt. Markmiðið er að þið fáið skýra mynd af einni viku í lífi ykkar.
Gert er ráð fyrir því að þið haldið þennan hluta dagbókar meðan á fyrri hluta vefleiðangursins stendur. Þið þurfið að nýta niðurstöður til að geta unnið verkefni í seinni hlutanum en að öðru leyti verður ekki gerð krafa um að þið leggið þessa athugun ykkar fram. Hversu mikið þið gefið upp verður því ykkar ákvörðun.
Bjargir
Upplýsingar um ökunám, gagnvirk umferðarverkefni, upplýsingar um kostnað við ökunám (ekill.is), umferðarlög og reglugerðir, tenglasafn, svör við algengum spurningum o.fl.
Spreyttu þig á bílprófum á netinu:
Upplýsingar um bílalán, afborganir, tryggingar o.fl
- http://www.rsk.is/skolavefur/default.asp?url=forsida.asp&m=1
- http://www.islandsbanki.is
- http://www.kaupthing.is/
- http://www.landsbanki.is/
- http://www.byr.is/
- http://www.spron.is/
Af þessari síðu á vef Menntamálaráðuneytisins eru tenglar inn á vefi hjá öllum framhaldsskólum landsins. Þar eru ýmsar upplýsingar sem gætu nýst ykkur við að skipuleggja tíma ykkar í seinni hlutanum - Að tveimur árum liðnum.
Leitarvefir:
Leitið einnig upplýsinga á bókasafni.
Ferli
Vinnuhópar myndaðir í samráði við kennara hópsins. Allir hópar eiga að halda leiðarbók um vinnuferlið. Hún á að innihalda heimildalista yfir allar upplýsingaveitur sem þið notið og sýna allar niðurstöður sem þið komist að.
Fyrri hluti
- Byrjið á því að afla ykkur upplýsinga um ökunám.
- Vinnið úr upplýsingum og setið þær í aðgengilegt form.
- Skoðið gagnvirk verkefni og próf sem er að finna á Netinu og miða að því að þjálfa færni ökumanna. Leggið mat á það hvað af því gagnast ykkur best í ökunáminu. Gerið grein fyrir því í kynningu.
- Hópar kynna verkefni sín innbyrðis og skipta með sér verkum fyrir foreldrakynningu sem verður í lok leiðangursins.
Seinni hluti
- Ein vika í lífi 10. bekkinga. Hver hópur setur niðurstöður dagbókarskráningar saman í eitt form (Exel) þannig að útkoman verði raunsæ mynd af lífi 10. bekkinga við sams konar aðstæður og þið búið við. Hvernig er ein vika í lífi 10. bekkinga? Hvað fer mikill tími í skólann og heimanámið? Hve mikinn frítíma eiga þeir? Hvað gera þeir í frítíma sínum? Vinna þeir með náminu? o.s.frv.
- Að tveimur árum liðnum. Hvernig sjáið þið lífið fyrir ykkur eftir tvö ár? Verkefnið felst í því að gera fjárhagsáætlun og skipuleggja tíma ykkar þar sem þið gerið ráð fyrir að aðstæður ykkar séu eftirfarandi:
- Þið eruð á öðru ári í framhaldsskóla og í fullu námi.
- Þið eruð í hlutastarfi.
- Þið hafið nýlega fest kaup á notaðri bifreið og hafið þar með gengist undir ákveðnar fjárhagslegar skuldbindingar.
- Þið gerið ykkur grein fyrir eigin ábyrgð.
- Þið viljið standa ykkur í náminu.
- Þið búið enn hjá foreldrum ykkar án endurgjalds.
- Þið eru hagsýn og farið skynsamlega með peningana ykkar.
- Foreldrar ykkar koma ekki að rekstri bifreiðarinnar.
- athugasemdir um hvernig vinnan gengur
- hugrenningar ykkar um eigin ábyrgð í umferðinni
- hvað breytist hjá ykkur við það að fá bílpróf
Mat
Þessum leiðangri fylgir matsblað þar sem þið leggið mat á vinnu þeirra sem starfa með ykkur í hópi. Kennari hefur einnig sinn viðmiðunarkvarða þegar hann metur framlag ykkar.
Kynnið ykkur matsblöðin áður en þið byrjið og gerið ykkur vel grein fyrir á hverju námsmatið byggir.
Niðurstaða
Þegar þið hafið lokið þessum leiðangri hafið þið fengið gott veganesti sem hjáplar ykkur að:
- undirbúa ykkur fyrir væntanlegt ökunám.
- skipuleggja næstu tvö til þrjú ár í lífi ykkar í samráði við foreldra ykkar.
