Vefleiðangur - Ungliðastarf RKÍ
Kynning | Verkefni| Bjargir | Ferli | Mat | Niðurstaða
Kynning
Þið eruð sjálfboðaliðar í ungliðahreyfingu RKÍ. Það þarf að ná inn fleiri sjálfboðaliðum þar sem umfang starfsins hefur aukist, m.a. vegna jafningjafræðslu og aukinna sjálfboðastarfa. Ykkur hefur verið falið að halda kynningu á starfinu með það markmið í huga að laða að fleiri sjálfboðaliða. Í framhaldi af því eigið þið að skipuleggja námskeið í skyndihjálp fyrir nýja sjálfboðaliða.
Forsenda þess að þið getið skipulagt námskeiðið er að þið hafið aflað ykkur víðtækrar þekkingar á starfi RKÍ. Það getið þið gert með því að fara í vefrallý um RKÍ.
Verkefnið
Þið vinnið saman í hópum að því að útbúa kynningu á starfi RKÍ. Þið þurfið að afla ykkur upplýsinga um málefnið og starfsemi þess og leggið aðaláhersluna á ungliðastarfið og skyndihjálpina. Þið getið leitað fanga hjá fólki sem starfar fyrir RKÍ, á vef RKÍ, á bókasöfnum, í blöðum, bókum og tímaritum og jafnvel víðar. Afraksturinn getur verið bæklingur, myndband, veggspjöld, margmiðlunardiskur, leikrit eða hvað annað sem þið teljið að nái vel til jafnaldra ykkar.
Skyndihjálpina setjið þið fram sem fyrirlestur með verklegum og skriflegum æfingum, með það markmið fyrir augum að kenna grundvallaratriði í skyndihjálp.
Bjargir
Ferlið
- Kennarinn skiptir ykkur í þrjá hópa. Hver hópur leitar að heimildum um sitt viðfangsefni.
- Hópur- leitar að heimildum um Rauða Krossinn og vinnur kynninga efni.
- Hópur- leitar að heimildum um Ungliðastarf Rauða Krossins og útbýr kynningaefni.
- Hópur- leitar að heimildum um grundvallar atriði skyndihjálpar og undirbýr námskeið/kynningu.
- Undir hverju viðfangsefni eru spurningar til hjálpar nemendum sem leitað skal svara við og ákveðin atriði sem vert er að hafa í huga þegar kynningin eða námskeiðið eru útbúin.
Rauði kross Íslands
- Hvað er RKÍ?
- Hver var hvatinn að stofnun RKÍ og hver er saga hans?
- Hver eru markmið RKÍ?
- Hvernig er starfi RKÍ á Íslandi háttað og hverjar eru áherslur hans?
Rauði kross Íslands Ungliðastarf
- Hver eru markmið URKÍ?
- Í hverju felst starfið hér heima?
- Hverjar eru starfsreglurnar?
- Hvernig er fræðslu og útgáfumálum háttað?
- Hver eru markmiðin með rekstri ungmenningarhúss?
- Hvað er jafningjafræðsla?
- Hver er stefna og fræðsla Jafningjafræðslunnar?
Skyndihjálp
- Kynning- hvað er skyndihjálp og grundvallarreglur hennar?
- Umferðaslys, aðgerðir á vettvangi.
- Hugað að slösuðum(öndun, blæðing, lost) frumskoðun.
- Endurlífgun (blástur, hnoð).
- Lög um samhjálp.
- Aðskotahlutur í öndunarvegi.
- Brunasár.
Atriðaorðaskrá til hjálpar við undirbúning á námskeiði í skyndihjálp
- RKÍ
- Skyndihjálp
- Umferðaslys
- Grundvallar reglur á vettvangi
- Neyðarlína
- Sálræn skyndihjálp
- Smitsjúkdómar
- Frumskoðun
- Líkamsskoðun
- Öndunarvegur
- Hnoð
- Blástur
- Endurlífgun
- Meðvitundarstig
- Hliðarlega
- Blæðing
- Lost
- Bruni
Mat
- Jafningjamat
- Hvernig unnið er úr heimildum
- Verkefnið í heild
- Framsetning - kynning á verkefni
Niðurstaða
Að loknu þessu verkefni ættuð þið að vera orðin vel upplýst um það viðamikla og mikilvæga starf sem Rauði krossinn vinnur ásamt því að kynna ykkur undirstöðuatriði skyndihjálpar sem ekki er síður mikilvægt.
