Vefrallý - Börn og umferð
Þið eruð þátttakendur á ráðstefnu um umferðarmál og eigið að flytja fyrirlestur um börn og umferð. Vinnið fyrirlestur ykkar út frá eftirfarandi spurningum og setið upp glærukynningu. Þið finnið svör við spurningunum á vef Umferðarstofu www.us.is undir liðnum Umferðaröryggi.
- Hver mörg prósent barna voru í bílstól árið 2008?
- Hve miklu munar á prósentutölu þeirra barna sem voru í bílstól árið 2008 og árið 1999?
- Hvað þarf barn að hafa náð mikilli hæð til að mega sitja í framsæti bíls þar sem uppblásanlegur öryggispúði er fyrir framan það?
- Hver ber ábyrgð á öryggi barna í bílum?
- Hvað má sekta ökumann um háa fjárhæð ef hann gætir þess ekki að farþegar hans, sem eru yngri en 15 ára, noti öryggis- og verndarbúnað?
- Fyrir hverja er bréfaskólinn Ungir vegfarendur?
- Hver eru markmið bréfaskólans Ungir vegfarendur?
- Hvernig starfar bréfaskólinn Ungir vegfarendur?
- Hvaða námsefni er notað í bréfaskólanum Ungir vegfarendur?
- Hver eru helstu markmið umferðarfræðslu í leikskólum?
- Hvort er árangursríkara að vera með bóklega eða verklega umferðarfræðslu í leikskólum? Hvers vegna?
- Á hverju vori er starfræktur umferðarskóli fyrir 5 - 6 ára börn.
- Á vegum hverra er sá skóli?
- Hver eru aðalviðfangsefni hans?
- Hver eru markmiðin með umferðarfræðslu í grunnskólum?
- Hvenær er gert ráð fyrir að nemendur á grunnskólaaldri hafi náð að
- tileinka sér helstu umferðarreglur?
- tileinka sér örugga hegðun sem hjólandi vegfarandi í umferðinni og á skautum, s.s. línuskautum?
- taka ábyrgð á eigin öryggi í umferðinni og að hafa skilning á öryggi annarra í umferðinni?
- Hvað felst í því að tileinka sér örugga hegðun í umferðinni og taka þar með ábyrgð á eigin hegðun?
- Nefnið fjögur góð ráð sem grunnskólanemendum eru gefin til að fara eftir á leið þeirra í skólann. Að minnsta kosti eitt þeirra þarf að sýna að þið látið ykkur varða heill samferðafólks ykkar.
- Útskýrið þrjú atriði sem gera börnum erfitt fyrir í umferðinni. Eitt þeirra verður að fjalla um málnotkun og málskilning.
- Það læra börn sem fyrir þeim er haft. Hvernig á þetta máltæki við í umferðinni?
