Vefrallý - Gátlisti fyrir ferðalagið
Þið eruð á leið í viku útilegu með fjölskyldunni og takið fullan þátt í undirbúningi hennar. Ykkar hlutverk er að setja saman minnislista yfir helstu öryggisatriði sem þurfa að vera í lagi áður en lagt er af stað.
Smellið á fyrirsagnir til að komast inn á vef Umferðarstofu þar sem þið finnið svör við spurningunum.
Skilið minnislistanum til kennara að vinnu lokinni.
- Hver eru helstu atriðin sem þarf að huga að áður en lagt er af stað í ferðalag?
- Nefnið að tvö atriði sem þarf að athuga sérstaklega þegar farið er í lengra ferðalag með fellihýsi eða tjaldvagn í eftirdragi?
- Hvaða lög gilda um notkun bílbelta?
- Hvers vegna þarf að ganga tryggilega frá farangri og lausum munum inni í bílum?
- Hvað gerist ef of þungir hlutir eru geymdir í farangurshylki eða á grind á toppi bílsins?
- Hvers vegna er nauðsynlegt að hafa ávallt hæfilegt bil á milli bíla í akstri?
- Hvað er eitt af því hættulegasta sem ökumenn reyna í umferðinni?
- Hvernig gengur best að leysa upp bílalest sem oft myndast úti á þjóðvegum?
- Hvað á að gera þegar komið er að slysi?
- Hvað á að gera ef umferð stöðvast í jarðgöngum?
- Hvað á að gera ef eldur kviknar í bíl í jarðgögnum?
- Hvaða atriði þarf að athuga vel þegar barnabílstóll er keyptur?
- Hvers vegna á að nota bakvísandi barnastóla eins lengi og hægt er?
- Hvernig er hægt að tryggja vellíðan barna í bíl?
