Vefrallý - Rauði krossinn
Ykkur hefur verið falið að halda námskeið um ungliðastarf RKÍ sem hluti af lífsleikni námi ykkar hér við skólann. Fyrsta skrefið er að afla sér þekkingar á starfi RKÍ. Spurningarnar eiga að leiða ykkur í gegnum þá þekkingarleit en svörin við þeim finnið þið inn á vef RKÍ www.rki.is. Skráið svörin inn í ritvinnsluskjal og ræðið þau í hópnum/bekknum að vinnu lokinni. Með þessu ættuð þið að fá betri yfirsýn yfir starf RKÍ og þá þætti sem nauðsynlegt er að leggja áherslu á á námskeiðinu.
Fyrri hluti:
- Hver eru markmið Rauða krossins?
- Hvert er aðalinntakið í markmiðunum?
- Veldu það markmið sem þér/ykkur þykir mikilvægast.
- Hvert af markmiðunum fjallar um skyndihjálp?
- Hvað er skyndihjálp?
- Hver er munurinn á almennri skyndihjálp og sálrænni skyndihjálp?
- Hvaða reglur gilda um Skyndihjálparmann ársins?
- Hvers vegna er haldinn sérstakur Skyndihjálpardagur?
Hvaða ár var þema Skyndihjálpardagsins umferðaröryggi? - Hverjir taka þátt í Skyndihjálpardeginum?
- Hvað áætlar Alþjóða Rauði krossinn að almenningur bjargi mörgum mannslífum með því að beita skyndihjálp á vettvangi?
- Hver eru markmið Skyndihjálparráðs og hvaða stofnanir og félagasamtök skipa ráðið?
- Hvað er Endurlífgunarráð?
- Hvert er hlutverk Endurlífgunarráðs?
Seinni hluti
- Við hvaða aðstæður er helst beitt sálrænni skyndihjálp?
- Hvaða einkenni er líklegt að sá sem upplifir alvarlegan atburð finni til?
- Eru viðbrögð barna og fullorðinna við alvarlegum atburðum hliðstæð?
- Nefndu 4-5 leiðir til að veita sálræna skyndihjálp?
- Hver eru helstu einkenni áfengisvímu?
- Hvernig er best að bregðast við ofneyslu áfengis eða annara vímuefna?
- Hvað er sykursýki og í hvaða gerðir skiptist hún?
- Hverjar eru helstu orsakir hás blóðsykurs?
- Hvaða einkenni koma fram við háan blóðsykur?
- Við of lágan blóðsykur koma fram ákveðin einkenni, hver eru þau?
- Vettvangur umferðaslyss getur verið hættulegur, hvað er mikilvægast að gera við aðkomu að slysi þar sem umferð er mikil?
- Hvaða grundvallarreglur skyndihjálpar skipta mestu máli á slysstað?
- Af hverju stafar lost?
- Hver eru einkenni losts?
- Hvaða aðferðum skyndihjálpar er beitt við meðhöndlun losts?
- Hvað er mikilvægt að muna ef manneskja er í losti?
- Hvað skal gera við meðhöndlun bits og stungna?
- Hvaða bit eru algengust á Íslandi
- Þú ert bitin af hundi, hvernig meðhöndlar þú sárið?
- Hver er algengasti aðskotahlutur í öndunnarvegi?
- Hvað á að gera ef stendur í fullorðnum einstaklingi?
- Lýstu hvernig á að bera sig við Heimlich aðferðina?
- Hvernig á að bera sig að ef stendur í ungabarni?
- Endurlífgun er beitt við hjartastopp, hvað veldur hjartastoppi?
- Hver eru viðeigandi viðbrögð við endurlífgun við mismunandi aðstæður?
- Hvað er mikilvægast að gera í upphafi ef beita á blástursaðferðinni?
- Vinur þinn er í hjartastoppi og andar ekki, hvernig berð þú þig að við endurlífgun?
- Hvernig skal meðhöndla astma?
- Hvað er mikilvægast að gera ef stöðva á blæðingu?
- Hvers konar skyndihjálp skal beita við útvorts blæðingu?
- Kannt þú skyndihjálp? Taktu prófið og kannaðu hvar vitneskja og hæfni þín liggur? Skráðu niðurstöðuna.
- Kemur vefur þessi í staðinn fyrir námskeið í skyndihjálp?
