Vefrallý - Umferðarfræðsla
Þetta verkefni er keppni á milli hópa. Hver hópur á að fara inn á vef Umferðarstofu www.us.is og reyna að vera fyrstur til að svara öllum spurningum hér á síðunni.
- Enginn má byrja fyrr en búið er að gefa merki.
- Opnið ritvinnsluskjal og setjið þar inn öll svörin við spurningunum.
- Sendið svörin í tölvupósti til kennara ykkar og þar sést hvaða hópur verður fyrstur!
Af stað!
- Hvað hafa margir látist í umferðinni það sem af er árinu?
- Hversu margir slösuðust alvarlega í umferðinni árið 2007?
- Hversu margir slösuðust lítið í umferðinni árið 2006?
- Hvert er hlutverk Umferðarstofu?
- Hvað eru margir umferðarleikir á us.is?
- Veldu eina auglýsingaherferð frá Umferðarstofu og segið frá boðskap hennar. Hvaða áhrif hafði auglýsingin á þig/ykkur?
- Nefnið fimm flokka umferðarmerkja, tilgang hvers flokks og fimm merki sem tilheyra hverjum þeirra.
- Hvað heita þessi umferðarmerki og hvaða flokki tilheyrir hvert þeirra?




- Hvað heitir merkið? Hvað flokki tilheyrir það? Að hvaða leyti greinir það sig frá öðrum merkjum í sama flokki og hvers vegna?

- Finnið þrenns konar merki sem ætlað er að greiða gangandi vegfarendum leiðina í umferðinni.
- Hvaða merkingu hefur rautt ljós samtímis gulu ljósi á almennu umferðarljósi?
- Hve langan tíma tekur að aka 48 km vegalengd ef ekið er á 90 km hraða?
- Hver er skyldubúnaður á reiðhjólum í umferðinni?
- Hvers vegna má ekki líma merki á reiðhjólahjálma?
- Hvað er talið að hægt sé að komast hratt á hlaupahjóli?
- Hvaða öryggis- og hlífðarbúnaður er nauðsynlegur þegar ferðast er um á hlaupahjóli?
