Vefleiðangur
á að þjálfa ykkur í að afla upplýsinga og þekkingar um eitthvert ákveðið efni og vinna úr því á skapandi hátt líkt og þið gerið í þemaverkefnum. Þið fáið mál sem þið eigið vinna úr og finna lausn á og kynna niðurstöður ykkar í lokin.
Áður en þið hefjist handa er mikilvægt að þið lesið leiðangurinn yfir svo þið vitið til hvers er ætlast af ykkur.
Það er gert ráð fyrir því að þið notið Netið, bókasöfn og aðra miðla til að finna upplýsingar. Einnig er gert ráð fyrir að þið vinnið saman í hópum við að finna lausn á málum.
