Venjuleg leturstærð Stækka texta Ljós texti á dökkum bakgrunni Veftré Prenta síðu
Leita

Námskrá

Hér er að finna tillögu að skólanámskrá í umferðarfræðslu fyrir 1.-10. bekk. Mikilvægt er að skólar skoði námskrár  sínar og aðlagi þær að umferðarumhverfi hvers skóla og m.t.t. samstarfsaðila í sveitarfélaginu. Í námskránni er bent á ýmislegt efni í umferðarfræðslu en sá listi er ekki tæmandi.

Áfangamarkmiðum í lífsleikni er skipt niður á þrjú stig, 1.-4. bekk, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk. Lokamarkmið lífsleikni sem tengjast umferðarfræðslu eru að nemandi:

• öðlist samfélagslega yfirsýn sem gerir honum kleift að skilja og virða reglur samfélagsins
• verði meðvitaður um ýmsar hættur og slysagildur í umhverfi sínu og rétt viðbrögð við þeim, svo sem í umferðinni, á  heimilum og í tengslum við hamfarir í náttúrunni
• sé meðvitaður um nauðsyn ábyrgrar hegðunar í umferðinni
• þekki og hafi innsýn inn í það að vera neytandi
• þroski með sér skilning á hugtakinu sjálfbær þróun
• taki ábyrga afstöðu gagnvart áróðri
• þjálfist í að fjalla um dægurmál
           (Aðalnámskrá grunnskóla – Lífsleikni, 2007)

Áhersla umferðarfræðslu í hverjum árgangi þarf því að vera að:

• Auka þekkingu og skilning nemenda á umferðarreglum.
• Efla færni nemenda í umferðinni með hagnýtum þjálfunaræfingum á vettvangi og stuðla að því að þeir verði sjálfbjarga í umferðinni.
• Styrkja og/eða móta viðhorf nemenda til ábyrgrar hegðunar í umferðinni.