Foreldrar
Foreldrar eru mikilvægar fyrirmyndir barna í umferð. Brýnt er að foreldrar aðstoði börn sín við að stíga fyrstu skrefin í umferðinni og að þeim sé gerð grein fyrir mikilvægi þess að sýna jákvæða og rétta hegðun í umferðinni.
Hér er að finna ábendingar um þætti sem mikilvægt er að foreldrar fari yfir með börnum sínum og hvaða leiðir unnt er að fara við að styrkja jákvæða og rétta hegðun í umferðinni.
