Öryggisbúnaður barna í bílum
Þetta verkefni er keppni á milli hópa. Hver hópur á að fara inn á vef Umferðarstofu þar sem fjallað er um öryggisbúnað barna í bílum og reyna að vera fyrstur til að svara öllum spurningum hér á blaðsíðunni.
- Enginn má byrja fyrr en kennarinn gefur merki.
- Opnið ritvinnsluskjal og setjið þar inn öll svörin við spurningunum.
- Prentið skjalið út og afhendið kennaranum það.
Af stað!
- Hvað er mikilvægt að foreldrar/bílstjórar geri áður en þeir aka af stað með börn í bílnum?
- Hvers vegna eiga börn að nota viðeigandi öryggisbúnað eins og bílstól og bílpúða þegar þau eru farþegar í bíl?
- Hvort er betra að barn sitji á bílpúða í framsæti eða aftursæti?
- Hvað þarf barn að hafa náð mikilli hæð og vera orðið þungt til að mega sitja í framsæti bíls þar sem uppblásanlegur öryggispúði er fyrir framan það?
- Hver ber ábyrgð á öryggi barna í bílum?
- Finnið þessa myndir og útskýrið muninn á öryggisbúnaðinum sem börnin nota. Þið getið tekið afrit af myndunum á vef Umferðarstofu og límt þær inn á glærurnar ykkar.
