Venjuleg leturstærð Stækka texta Ljós texti á dökkum bakgrunni Veftré Prenta síðu
Leita

Umferðarskólinn Ungir vegfarendur

Þetta verkefni er keppni á milli hópa. Hver hópur á að fara inn á vef Umferðarstofu þar sem fjallað er um umferðarskólann Ungir vegfarendur og reyna að vera fyrstur til að svara öllum spurningum hér á blaðsíðunni.

Smellið á fyrirsagnirnar til að komast inn á vefinn.

  • Enginn má byrja fyrr en kennarinn gefur merki.
  • Opnið ritvinnsluskjal og setjið þar inn öll svörin við spurningunum.
  • Prentið skjalið út og afhendið kennaranum það.

Af stað!

Bréfaskólinn Ungir vegfarendur

  1. Fyrir hverja er bréfaskólinn Ungir vegfarendur?
  2. Hvers konar námsefni fá börnin sent heim til sín?
  3. Hver eru markmið bréfaskólans?

Um Umferðarskólann

  1. Hverjir starfrækja Umferðarskólann?
  2. Hverjir sjá um fræðsluna í Umferðarskólanum?
  3. Á hvaða árstíma starfar Umferðarskólinn?
  4. Um hvað er fjallað í Umferðarskólanum?
  5. Hvað heitir myndin sem er sýnd í Umferðarskólanum?