Hugmyndalisti
Leiðin í skólann
Eru til reglur um gönguferðir og hjólreiðaferðir á vegum skólans?Er aðstaða til að hleypa fólki inn og út úr bíl við skólann til að minnka umferðarvanda við skólann?
Er einhver stefna um akstur í tengslum við skólann? Til dæmis um notkun bílbelta eða að hraðatakmarkanir séu birtar.
Eru foreldrar hvattir til að keyra börnin sín ekki í skólann?
Er möguleiki á að lagfæra einhver vandamál við skóla? T.d. bílastæði, merkingar, að klippa niður tré eða runna eða lagfæra á umferðarmannvirki.
Umferðarfræðsla
Er yfirlit yfir það efni og þau gögn sem hægt er að nota aðgengilegt? Er virk kennsluáætlun fyrir hendi?Er sérstakur kennari í skólanum sem skipuleggur umferðarfræðslu?
Eru sérstakir umferðardagar haldnir, t.d. til að vekja athygli á endurskinsmerkjum, hjólreiðadagar eða einhverjir aðrir viðburðir?
Er gangbrautarvörður við skólann?
Býður skólinn lögreglu eða einhverjum öðrum í heimsókn í tengslum við umferðarfræðslu?
Fyrirmyndir
Hafa allir, þ.e. kennarar, nemendur og foreldrar, fullnægjandi kunnáttu í umferðarreglum?Er samráð milli foreldra um notkun barna á hjólreiðahjálmum, endurskinsmerkjum og bílbeltum á skólatíma og utan hans?
Fara fram samræður um viðhorf til umferðarinnar og tillitssemi við aðra vegfarendur?
Er rætt um mikilvægi þess að leggja tímanlega af stað í skólann á morgnana?
Samvinna
Er virk samvinna og umræða um umferðarfræðslu meðal kennara og skóla-stjórnenda?Er námsáætlun um umferðarfræðslu virkt tæki í skólastarfinu?
Er foreldrafélagið virkt í málum sem tengjast umferð og umferðaröryggi?
Er skólinn, og foreldrar, í tengslum við tæknimenn sveitarfélagsins til að leysa tæknileg vandamál sem upp kunna að koma?
