Umferðaröryggi skólabarna
Þáttur foreldra og yfirvalda
Víða á Norðurlöndum er lögð áhersla á að skólar og skólayfirvöld móti sérstaka umferðaröryggisstefnu á víðum grundvelli. Slík áætlun byggist einkum á þremur aðalatriðum:
- Umferðarfræðsla.
- Fyrirmyndir.
- Samvinna.
Hvers vegna eiga skólar að koma sér upp umferðaröryggisáætlun?
Aðstæður og hugsanlega hætta af völdum umferðar við skóla getur verið margvísleg og oftar en ekki steðjar hún að þeim sem síst skyldi, börnunum.
Oft er mikil bílaumferð við skólana þegar börn mæta á morgnana
Mörgum börnum er ekið í skólann og sum þeirra eru ekki spennt í bílbelti. Mörg börn hafa ekki næga reynslu sem sjálfstæðir vegfarendur. Börn í elstu bekkjum grunnskóla standa frammi fyrir hættulegasta tímabili ævi sinnar í umferðinni. Oft er lítil eða engin umferðarfræðsla í þeim hópi. Börnin eru fullorðnir vegfarendur framtíðarinnar.
Hvernig byrjum við þetta starf?
Margar leiðir eru færar og það sem gert er þarf ekki endilega að vera dýrt eða flókið. Mestu máli skiptir að gera sér vel grein fyrir hver staðan er og ljóst er að aðstæður skóla eru mjög mismundandi. Sumir eru í þéttbýli, þar sem er mikil bílaumferð, og aðrir eru sveitaskólar með allt aðrar aðstæður. Skólayfirvöld þurfa að setja málið á dagskrá og nýta sér tengiliði sína. Hægt er að mynda starfshóp, þar sem æskilegt er að foreldrar, kennarar, skólastjórnendur og nemendur skiptist á skoðunum. Taka saman yfirlit yfir hvað skólinn gerir og skrá það hjá sér. Ekki er hægt að gera allt í einu. Miklu skiptir að gera áætlun um verkefni, sem ljóst er að séu framkvæmanleg. Deila þarf verkefnum milli hópa og nýta sér möguleika á gestafyrirlesurum. Það geta verið sérfræðingar frá sveitarfélaginu, frá lögreglu eða aðrir sem hafa sérþekkingu á málefninu.
Um hvað snýst umferðaröryggisáætlun skóla?
Áætlunin mótast af þörfum og aðstæðum í hverjum skóla. Meginatriðið er að skipa sem allra öruggast umhverfi við skólana fyrir alla sem þangað þurfa að sækja.
Leiðin í og úr skóla
Mikilvægt er að kynna sér vel gönguleiðir skólabarna í og úr skóla. Sums staðar eru hættur, sem auðvelt er að bæta úr með einföldum og ódýrum hætti. Reyna þarf að koma sem allra mest í veg fyrir að börnum sé ekið í skólann því að sú umferð getur reynst mjög hættulegt. Það stafar meðal annars af því að ekki er gert fyrir slíkri umferð við skólana. Oft er til dæmis erfitt að hleypa börnunum út úr bíl svo öruggt sé. Slíkt á auðvitað ekki við um akstur skólabíla.
Umferðarfræðsla
Allir skólar ættu að gera námsáætlun um umferðaröryggi fyrir alla bekki. Hægt er að efna til umferðaröryggisdaga og fá utanaðkomandi fyrirlesara í skólann til að tala við nemendur.
Fyrirmyndir
Miklu máli skiptir fyrir börn og unglinga að þau hafi góðar fyrirmyndir í umferðinni. Þar hefur atferli foreldra og kennara til dæmis mikið að segja. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Ef við ætlumst til tiltekinnar hegðunar af börnunum þurfum við að sýna sjálf góða umferðarhætti.
Samvinna
Mikilvægt er að allir aðilar sem tengjast málefninu með einum eða öðrum hætti vinni saman og viti hverjir af öðrum. Meðal þess sem slíkt samstarf gæti leitt af sér er að boðleiðir verði styttri og skýrari og að erindi og ábendingar komist sem fyrst í réttar hendur til að hægt sé að taka ákvarðanir. Huga þarf að þeim kröfum sem gerðar eru til aðila sem annast þjónustu og stuðning varðandi umferð og öryggi barna.