Söguaðferðin eða „Storyline“ er kennsluaðferð sem á uppruna sinn í Skotlandi og hefur átt góðu fylgi að fagna í íslenskum grunnskólum um áratuga skeið. Aðferðin einkennist af því að kennarinn mótar lykilspurningar um viðfangsefnið í samræmi við námsmarkið og skapar með þeim samfelldan þráð eða söguramma sem nemendur fylla inn í með því að leita svara við spurningunum. Nemendur miðla fyrst eigin þekkingu á viðfangsefninu og móta þar með grunn að nýrri þekkingu og færni sem verður til síðar í námsferlinu. Undir handleiðslu kennarans takast þeir á við ýmis mál sem upp koma, ræða saman og spyrja spurninga, finna lausnir, sannreyna þær og taka ákvarðanir. Þeir fara í vettvangsferðir, bæði að afla upplýsinga um viðfangsefnin og að skoða vettvang í ljósi þeirrar umfjöllunar og úrvinnslu sem átt hefur sér stað í skólastofunni eða nokkurs konar samanburður á þeim veruleika sem nemendur hafa skapað og raunverueikanum.
Í sögurömmum um umferðina skapa nemendur samfélag þar sem einn atburður rekur annan í lífi fólksins sem þar býr. Inn í söguna fléttast mannleg samskipti, reglur og menning samfélagsins. Nemendur velta meðal annars fyrir sér tilgangi umferðarreglna, öryggi fólks í umferðinni, orsökum og afleiðingum umferðarslysa, skyndihjálp og eigin ábyrgð í umferðinni. Verkefnin eru fjölbreytt og í þeim samþættast mismunandi námsgreinar allt eftir eðli þeirra. Verkefnin eru ýmist unnin í hópvinnu eða einstaklingslega og kynna nemendur þau jafnt og þétt meðan á vinnunni stendur en henni lýkur jafnan með kynningu fyrir foreldra.
Nánari upplýsingar um söguaðferðina má finna á vef Bjargar Eiríksdóttur, kennara í Kársnesskóla í Kópavogi http://www.simnet.is/storyline. Þar eru tenglar inn á erlenda vefi um aðferðina, þar á meðal inn á skoska vefinn.
