Venjuleg leturstærð Stækka texta Ljós texti á dökkum bakgrunni Veftré Prenta síðu
Leita

Fjölgreindir

Howard Gardner setti kenningu sína um fjölgreindir fram árið 1983 en með henni vildi hann víkka sýnina á mannlega möguleika út fyrir takmarkanir greindarvísitölunnar.

Í kenningum sínum fjallar Gardner um mismunandi svið greindar. Innan hvers samfélags er að finna ákveðin fræðasvið sem hvert um sig hefur eigið táknkerfi og eigin starfsemi sem einstaklingar fást við og geta náð þar hámarksárangri. Til að geta unnið verk á hverju sviði þarf einstaklingurinn að beita fleiri en einni greind og að sama skapi getur hann beitt sömu greind innan mismunandi sviða. Innan umferðafræðinnar og umferðarkennslunnar eru miklir möguleikar á að koma til móts við ólíkar þarfir einstaklinga með tilliti til fjölgreinda og vinna þannig með sterkar hliðar hvers og eins.