Venjuleg leturstærð Stækka texta Ljós texti á dökkum bakgrunni Veftré Prenta síðu
Leita

Mál og málnotkun

Verkefni þetta er hægt að vinna bæði í heild sinni og taka út einstaka þætti. Heildarverkefnið tekur nokkrar kennslustundir og er upplagt að vinna það samhliða öðrum umferðarverkefnum.

Lykilatriði: Hugök, málfræði, málnotkun, ritun, framsögn

1. hluti

Verkefni:

Hugtök og orð tengd umferðinni - flokkun - ritun - munnlegur flutningur - slagorðavinna - veggspjaldagerð - glærugerð - heimaverkefni.

Markmið:

Að nemendur verði ábyrgari vegfararendur og eflist í íslenskri málnotkun.

Námsgögn:

Pappír, druslublöð, tölvur, blýantar, litir, pennar, stílabók, Vegfarandinn 3, kennslubók í umferðarfræðslu fyrir 5. - 7. bekk.

Námsmat:

Símat á vinnu í kennslustundum, verkefnmappa metin.

Kynning:

Verkefnin sem við erum að fara að fást við, fjalla öll um umferðina á einn eða annan hátt. Hugtakið umferð skýrt og rætt um merkingu þess. Farið er yfir helstu umferðarreglur og merki.. Bókin Vegfarandinn 3 notuð.

Þetta er að mestu leyti hópverkefni. Hópurinn skilar sameiginlegum verkefnum.

Nemendum er skipt upp í þriggja manna hópa. Hópurinn hópurinn vinnur saman að lausn varkefna en skiptir með sér eftirfarandi hlutverkum: ritari, hópstjóri, gagnasafnari.

Verkefni 1:

Hver hópur útbýr gagnamöppu úr A3 pappír. Þessi mappa verður geymslumappa fyrir gögn sem eru í vinnslu og endanleg verkefni. Mappan er merkt og hópurinn velur sér einkunnarorð fyrir verkefnið sem mappan er skreytt með.

Verkefni 2:

Hugstormun eftir að kennari setur fram spurninguna: "Hvaða orð, hugtök, þekkið þið sem tengjast umferðinni"? Hóparnir fá nokkrar mínútur til að skrá á druslublað öll hugtök sem þeir finna. Farið er sameiginlega yfir listana upp á töflu. Hóparnir bæta inn í sinn lista ef með þarf.
Hugtökin rædd lauslega og gengið úr skugga um að sem flestir skilji þau.

Flokkun:
Hóparnir búa til 3-4 flokka úr orðunum, skíra þá og útbúa skýringu á vali orðanna fyrir hvern flokk.
Þetta vinna nemendur á tölvu, en mega skrifa fyrst upp á druslublað. Setja þetta síðan í möppuna.

2. hluti

Málfræðihugtökin fallorð, sagnorð og óbeygjanleg orð -smáorð ásamt undirflokkum fallorða útskýrð. Allir skrá niður í stílabók.

Verkefni 3:

Hóparnir greina umferðarorðin í orðaflokkana, skráning fer í möppuna. Farið yfir orðflokkagreininguna á töflu og spurningar eins og hvaða orðflokkur fékk flestu orðin og hver fæstu eða engin orð lagðar fram og niðurstöður ræddar. Hægt að bæta við textum úr Vegfarandanum eða eiginn texta til orðflokkagreiningar. Einnig er hægt að láta hópana fallbeygja og stigbeygja nokkur orð.

Hugtökin setning, málsgrein, slagorð og auglýsing útskýrð. Tekin dæmi upp á töflu. Allir skrá í stílabók.

Verkefni 4:

Hóparnir semja nokkrar málsgreinar og nota umferðarorðin til þess. Fyrst á druslublöð,síðan hreinskrifa á blað eða í tölvu. Sameiginlegar umræður um hvort einhverjar málsgreinar gætu orðið slagorð gegn umferðaróhöppum eða með bættri umferðarmenningu. Orðið menning útskýrt.

Verkefni 5:

Hver hópur býr til 3-4 góð slagorð gegn umferðaslysum eða með bættri hegðun í umferðinnni. Fyrst er skráð á druslublöð en síðan á renninga til að hengja upp á veggi.

Heimaverkefni 1:

Ræða við fjölskylduna um mikilvægi þess að fara eftir umferðarreglum og lögum.
Skrá í stílabók nokkrar niðurstöður og sjónarmið.

3. hluti

Rætt um heimaverkefni 1:

Upprifjun á nokkrum málsgreinum frá því í síðastu kennslustund. Nokkrar málsgreinar skráðar upp á töflu og ræddar.

Umræður um: Reglur í umferðinni, reynslu nemenda og umferðaslys/óhöpp, Hvað veldur þessu?
Spurningar og svör nemenda skráð á töfluna. Hóparnir skrá bæði spurningar og svör.

Spurningar frá kennara:

  1. Geta slagorð/ auglýsingar haft áhrif? Hvernig?
    Svör nemenda skráð á töflu og rædd. Hóparnir skrá bæði spurningu og svör.
  2. Hvernig er hægt að fækka umferðarslysum og bæta umferðarmenningu á Íslandi?
    Svör nemenda skráð á töflu og rædd. Hóparnir skrá bæði spurningu og svör.
  3. Hvað getið þið gert til að breyta ástandinu?
    Svör nemenda skráð á töflu og rædd. Hóparnir skrá bæði spurningu og svör.

Nemendum sýndar nokkrar sjónvarpsauglýsingar frá Umferðastofu.

Verkefni 6:

Hver hópur býr til 3-4 góð slagorð gegn umferðaslysum eða með bættri hegðun í umferðinnni. Fyrst á druslublöð, síðan á renninga til að hengja upp á veggi.

Hugtakið efnisgrein er útskýrt, skrá í stílabók

Heimaverkefni 2:

Hver hópur fær /velur 3 - 4 svör og skrifar nokkrar málsgreinar um framkvæmd eða innihald svaranna sem nánari útskýringu, eina efnisgrein um hvert svar. Fyrst á druslublað síðan að hreinskrifa. Koma með það tilbúið í möppu í næstu kennslustund.