Venjuleg leturstærð Stækka texta Ljós texti á dökkum bakgrunni Veftré Prenta síðu
Leita

Umferðarvinir

Samstarfsverkefni heimila, skóla/nemendafélags og lögreglu.

Gönguleiðir til og frá skóla

Elstu nemendurnir taka að sér að fylgja yngri nemendum (systkinum, frændsystkinum, nágrönnum) í skólann einu sinni til tvisvar á skólaárinu og hjálpa þeim að finna öruggustu leiðina til og frá skóla. Hér gæti verið um ákveðna daga að ræða á hverju skólaári og verkefnið undirbúið í samráði við foreldra og lögreglu sem kæmi að með fræðslu og væri sýnileg á vettvangi þessa daga.