Um vefrallý
Skemmtilegt fyrirbæri sem gaman og gagnlegt er að nota í kennslu. Vefrallý gengur út á það að afla upplýsinga og þekkingaratriða á vef á sem skemmstum tíma. Hægt er að nota það á ýmsan hátt í kennslu og virkar vel í samvinnu milli nemenda.
Þeim sem vilja kynna sér þessa kennsluaðferð enn frekar er bent á að fara inn á einn af kennsluvefjum Salvarar Gissurardóttur, lektors í upplýsinga og tæknimennt við Kennaraháskóla Íslands, þar sem hún fjallar um vefrallý.
Um vefleiðangra
Vefleiðangrar hafa rutt sér til rúms sem kennsluaðferð á undanförnum árum. Meginmarkmið þeirra er að þjálfa nemendur í að afla sér upplýsinga og þekkingar um tiltekið efni og vinna síðan úr því á skapandi hátt. Þeir fá einhver mál til að kljást við, þurfa að leita lausna og setja fram sínar eigin niðurstöður sem mótast af reynslu þeirra, þekkingu og færni. Nemendur leggja af stað með ákveðnar hugmyndir sem taka breytingum eftir því sem líður á leiðangurinn og nýjar upplýsingar bætast við. Þeir endurskoða fyrri þekkingu og reynslu og móta sér nýjar hugmyndir.
Þeim sem vilja kynna sér þessa kennsluaðferð enn frekar er bent á að fara inn á einn af kennsluvefjum Salvarar Gissurardóttur, lektors í upplýsinga og tæknimennt við Kennaraháskóla Íslands, þar sem hún fjallar um vefleiðangra. Hún vísar þar bæði í innlenda og erlenda vefleiðangra og á íslenska vefi sem fjalla um þær námskenningar sem þessi kennsluaðferð byggir á, þ.e. lausnaleitarnám og hugsmíði.
Þið finnið vefrallý og vefleiðangra á nemendasíðunum.
