Venjuleg leturstærð Stækka texta Ljós texti á dökkum bakgrunni Veftré Prenta síðu
Leita

Leiðin milli heimilis og skóla

Umferðin er óaðskiljanlegur þáttur af daglegu lífi okkar og óhætt að fullyrða að flestir nemendur kynnast henni í hnotskurn á leið sinni í skólann. Eitt af verkefnum grunnskólans í upphafi hvers skólaárs er að fjalla um leiðina milli heimilis og skóla með það að markmiði að auka öryggi nemenda í umferðinni. Nemendur verða að gera sér grein fyrir hvers eðlis umferðin er svo að þeir geti lært að ferðast um á öruggan hátt. Gott samstarf við heimili nemenda er forsenda þess að árangur náist á þessu sviði.

Aðalnámskrá grunnskóla

Í Aðalnámskrá grunnskóla (1999) fellur umferðarfræðsla undir lífsleikni. Meginmarkmið fræðslunnar er að nemendur:

  • Læri umferðarreglur og þjálfist í að fara eftir þeim
  • Geri sér grein fyrir eigin ábyrgð í umferðinni
  • Geri sér grein fyrir hættum og afleiðingum sem fylgja hvers kyns áhættuhegðun
  • Geri sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni og skyldum
  • Verði færir um að meta réttmæti áróðurs
  • Tileinki sér ábyrg viðhorf til umhverfisins
  • Læri að ferðast um umhverfi sitt á öruggan hátt

Fræðsla í öllum árgöngum þarf að miða að því að

  • auka þekkingu og skilning nemenda á umferðarreglum.
  • efla færni nemenda í umferðinni með hagnýtum þjálfunaræfingum á vettvangi og stuðla að því að þeir verði sjálfbjarga í umferðinni.
  • styrkja og/eða móta viðhorf nemenda til ábyrgrar hegðunar í umferðinni.

Vettvangsferðir

Vettvangsferðir eru ómissandi þáttur í umferðarfræðslu. Ef fræðslan á að bera tilætlaðan árangur verður að taka mið af þeim raunveruleika sem nemendur búa við og tengja umferðarverkefnin við þann vettvang sem unnið er með hverju sinni.

Ábyrg og örugg hegðun í umferðinni

Mikilvægt er að nemendur temji sér ábyrga hegðun í umferðinni og stuðli þannig að eigin öryggi og annarra. Hvers þurfum við að gæta á leið okkar í skólann? Er hegðun okkar ábyrg og til eftirbreytni? Erum við rauðir, gulir eða grænir vegfarendur? Sjá Er du rød, gul eller grøn trafikant?

  • Þeir grænu fylgja almennt umferðarreglum og eru fyrirmyndar vegfarendur.
  • Þeir gulu taka stundum áhættu og brjóta umferðarreglur.
  • Þeir rauðu taka stöðugt áhættu í umferðinni og er hér aðallega um yngri ökumenn að ræða.