Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

miðvikudagur 16. maí 2012 kl. 06:50

Ef bíll bilar

Það eru nokkur einföld atriði sem að er mikilvægt að hafa í huga ef bíll bilar. Ef stöðva þarf bílinn þar sem hann hefur mögulega áhrif á umferð skal staðsetja hann þannig að ekki skapist hætta af honum fyrir aðra vegfarendur. Kveikt skal á viðvörunarljósum eða svonefndum Hazardljósum og einnig á stöðuljósum. Síðan skal setja viðvörunarþríhyrningi sem á að vera í öllum bílum í hæfilegri fjarlægð fyrir aftan bílinn. Það er hægt að hafa það sem reglu að ef maður er á vegi þar sem 90km hámarkshraði gildir þá eru hafðir að minnsta kosti 90 metrar í viðvörunarþríhyrninginn. Síðan skulu gerðar ráðstafanir til að fjarlægja bílinn sem allra fyrst.

miðvikudagur 16. maí 2012 kl. 06:44

Foreldrar eru besta fyrirmyndin

Athugasemd hefur borist til Umferðarstofu, þar sem fjallað er um hjálmanotkun.  Þar kemur fram að börn noti oftast hjálm á reiðhjólum, en foreldrar sem ættu að vera þeirra góðu fyrirmyndir ekki. Rétt er að fólk hafi þetta í huga þegar það hjólar.

miðvikudagur 16. maí 2012 kl. 06:42

Gott að hafa í huga varðandi hjólað í vinnuna

Nú er átakið Hjólað í vinnuna hafið og má því búast við aukinni umferð hjólandi vegfarenda. Hér eru nokkur atriði sem mikilvægt er að ökumenn og hjólandi vegfarendur hafi í huga.

  1. Hjólandi vegfarendur hafa fullan rétt á að vera á akbrautum. Á gangstígum má hjóla en þó með því skilyrði að gangandi sé sýnd tillitsemi og forgangur.
  2. Mikilvægt er að hjólreiðamaður hægi á sér og gefi hljóðmerki áður en hjólað er fram úr gangandi vegfaranda.
  3. Ökumaður skal sýna hjólandi þolinmæði og veita gott svigrúm, t.d. við þröngar aðstæður.
  4. Yfirleitt kemst hjólreiðamaður ekki eins hratt og akandi og því er mikilvægt að ökumenn horfi vel fram fyrir sig og séu þess viðbúnir að hægja skuli för.
  5. Ef mögulegt er skal hjólreiðamaður helst ekki hjóla á akbraut þar sem leyfður hámarkshraði er meiri en 60 km/klst.
  6. Hjólandi vegfarandi þarf að gæta þess að vera vel sjáanlegur.
  7. Í grundvallaratriðum gilda sömu umferðarreglur fyrir hjólandi og akandi og brýnt að eftir þeim sé farið.
  8. Þegar hjólreiðamaður þverar akbraut á gangbraut skal hann huga vel að annarri umferð. Stöðva og fara síðan ekki hraðar en sem nemur hraða gangandi vegfaranda yfir gangbrautina.
  9. Allir hjólreiðamenn eru hvattir til að nota hjálm en börnum yngri en 15 ára er skylt að vera með hjálm á hjóli.

miðvikudagur 16. maí 2012 kl. 06:41

Tæring í beisli getur skapað hættu

Eftir vetrargeymslu er mikilvægt að huga að ákveðnum öryggisatriðum á eftirvögnum. Tengibúnaður milli bíls og eftirvagns þarf að vera traustur.  Í festingum og splitti á beisli getur myndast tæring vegna ryðs sem dregið getur stórlega úr styrk beislisins á eftirvagninum og því er mikilvægt að huga að ástandi þess..  Mikilvægt er að ljós og endurskin séu í lagi og annað sem huga þarf að má sjá upplýsingar um hér á forsíðu heimasíðu Umferðarstofu.

miðvikudagur 16. maí 2012 kl. 06:40

Litlir saklausir hlutir geta valdið slysum

Það eru mörg dæmi um að litlir og að því er virðast sakleysislegir hlutir sem liggja lausir í bílum hafi við árekstur flogið af stað og valdið alvarlegum slysum á fólki. Sama á við um laus gæludýr sem sjálf geta stórslasast og slasað aðra við árekstur. Fyrir þau eru til sérstök öryggisbelti og búr sem borgar sig að nota. Það er nánast undantekningarlaust hægt að koma í veg fyrir þessi slys með því að setja allt sem er lauslegt í farangursgeymslu eða skorða það, þannig að ekki sé hætta á að það kastist til við árekstur.

miðvikudagur 16. maí 2012 kl. 06:39

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Nú er hafin vinna við breytingar á Suðurlandsvegi milli Bláfjallavegar og Litlu Kaffistofunnar. Unnið verður við frágang við Litlu Kaffistofuna. Þá verður akbrautin til austurs breikkuð og lagfærð. Búist er við að verkinu ljúki í júlí. Vegfarendur eru beðnir um að aka varlega um framkvæmdasvæðið og virða merkingar um hámarkshraða.

miðvikudagur 16. maí 2012 kl. 05:57

Flytjendur festi farm tryggilega

Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur lokið rannsókn á umferðaróhappi sem átti sér stað á Innstrandavegi þann 26. október 2011. Ökumaður vörubifreiðar með festivagn ók norður Innstrandaveg á Stikuháls, þegar sauðfé hljóp í veg fyrir bifreið hans. Ökumaðurinn snögghemlaði með þeim afleiðingum að þungur farmur festivangs bifreiðarinnar fór af stað, braut niður framgafl vagnsins, lenti svo á stýrishúsi bifreiðarinnar og braut það af festingum sínum. Ökumaðurinn slasaðist ekki í óhappinu. Að mati RNU skapaðist alvarleg hætta þar sem farmurinn var ekki festur eins og reglur kveða á um. Rannsóknarnefnd umferðarslysa hvetur farmflytjendur til þess að yfirfara verklagsreglur sínar til að koma í veg fyrir að sams konar slys eigi sér stað í framtíðinni. Í því máli sem hér er til meðferðar bar að haga festingu farmsins þannig, að hann færi ekki af stað í farmrýminu.

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++